Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1997

Fimmtudaginn 07. nóvember 1996, kl. 18:21:19 (982)

1996-11-07 18:21:19# 121. lþ. 20.2 fundur 119. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum 1997# (breyting ýmissa laga) frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 20. fundur

[18:21]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Umræðan snýst um þann veruleika að málefni fatlaðra fá 190 millj. kr. meira á næsta ári en þau fengu í ár. Ég ræðst ekki til neinnar atlögu við málefni fatlaðra, síður en svo. Þetta er forgangsmálaflokkur í mínu ráðuneyti.