Lánasjóður íslenskra námsmanna

Þriðjudaginn 12. nóvember 1996, kl. 14:07:33 (1032)

1996-11-12 14:07:33# 121. lþ. 21.11 fundur 7. mál: #A Lánasjóður íslenskra námsmanna# (samtímagreiðslur o.fl.) frv., menntmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur

[14:07]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason) (andsvar):

Herra forseti. Ef ég man rétt var núv. ríkisstjórn mynduð 23. apríl 1995 og þá var gefin út stefnuyfirlýsing hennar. Þar kemur fram að stjórnarflokkarnir eru sammála um að endurskoða beri lög og reglur um Lánasjóð íslenskra námsmanna. Það er á grundvelli þess samkomulags sem sú nefnd starfar sem nú er vonandi að ljúka störfum. (SvG: Hefur hún lokið störfum?) Hún er vonandi að ljúka störfum.