Flutningur ríkisstofnana

Þriðjudaginn 12. nóvember 1996, kl. 15:59:11 (1055)

1996-11-12 15:59:11# 121. lþ. 21.16 fundur 17. mál: #A flutningur ríkisstofnana# þál., KÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur

[15:59]

Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Mér blöskra þessir útúrsnúningar. Enginn er að tala um að fólk þurfi ekki að umgangast ómenntað fólk. Við erum einfaldlega að horfa á raunveruleikann, hvernig fólk velur sér störf og hvernig starfsmöguleikar eru. Mergurinn málsins, hv. þm., er sá að starfsfólk Landmælinga Íslands vill ekki flytja, það vill ekki fara með. Þar af leiðandi er flutningurinn ekki skynsamlegur, burt séð frá því hvaða kostir og gallar fylgja þessum stöðum hvort sem það er Selfoss eða Akranes.