Aðbúnaður um borð í fiskiskipum

Þriðjudaginn 12. nóvember 1996, kl. 20:15:02 (1107)

1996-11-12 20:15:02# 121. lþ. 21.27 fundur 131. mál: #A aðbúnaður um borð í fiskiskipum# þál., Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur

[20:15]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti vill geta þess strax að 26. mál verður tekið á dagskrá og til umfjöllunar þegar umræðu um það dagskrármál sem nú er til umræðu er lokið. Forseti hafði tekið málið út af dagskrá vegna fjarveru 1. flm. eins og hann orðaði það, en það hefur komið í ljós að hv. þm. var í þinghúsinu en samkvæmt tölvuskrá var hann það ekki.