Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):
Hæstv. forseti. Ég kann raunar ekki að skilgreina hvort flokkur hv. þm. Jóns Baldvins Hannibalssonar, sem ég kann raunar ekki að skilgreina, sé orðinn nútímalegur af því að hann hætti sem formaður eða hvort hann hafi kannski verið nútímalegur áður. (GE: Er nokkuð verið að spyrja um það?) Er nú von að maðurinn frá Skaganum spyrji.
Mér þótti vænt um að hv. þm. skyldi einmitt tala um það að veitt hefði verið fé, markaðsstyrkir, vegna inngöngu okkar í Evrópska efnahagssvæðið. Þeir styrkir mismunuðu að sjálfsögðu fyrirtækjum. Það er alls ekki rétt ef verið er að reyna að gefa það í skyn að menn hafi þar setið allir við sama borð eins og kom raunar fram hjá þingmanninum því að ýmsir voru óánægðir með úthlutun á þeim styrkjum og þeir runnu ekki með sama hætti til allra atvinnugreina eins og maður hefði þó getað búist við. Það fékk ekki mikla náð í þeirri ríkisstjórn hjá öðrum stjórnarflokkanna að landbrn. ætti aðild að því hvernig sem það nú svo fór.
Hér er auðvitað verið að tala um þá miklu klemmu sem mörg hótel eru í úti á landsbyggðinni vegna þess að viðskipti eru ekki nóg til þess að hægt sé að reka þau með góðum árangri allt árið um kring. Þessar 20 millj. sem veittar voru að frumkvæði fjárln. voru tilraun til þess að koma til móts við þau hótel sem voru verst sett og eins og kom fram í svari mínu var tekið tillit til efnahagslegrar þarfar og þannig komið til móts við það sem fyrir fjárln. vakti.
Auðvitað er rétt hjá hv. þm. að ef menn fara út í markaðsátak er aldrei hægt að halda svo á því að það komi öllum jafnt til góða. En það sem menn eru að gera er að reyna að styrkja hótelstarfsemi úti á landi og það skiljum við svona flestir þingmenn sem kjörnir eru af landsbyggðinni.