Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Fyrst langar mig til að minna hv. þm. á af því hann telur að allar þessar tillögur séu frá VSÍ að hann var sjálfur á fundi í efh.- og viðskn. og spurði sérstaklega hvort þetta mál kæmi ekki örugglega fram á haustþinginu og fékk jákvætt svar frá starfsmönnum ráðuneytisins. Mér er kunnugt um það. (ÁE: Hvaða mál?) Um tapsfrádráttinn, hvort ætti ekki að breyta honum í það horf sem hér er. Ég get því alveg eins haldið því fram að þetta sé frá hv. þm. komið. Enda var hann nú einu sinni nokkuð nátengdur VSÍ þannig að skylt er skeggið hökunni.
Í öðru lagi skal ég láta nefndina hafa allar tiltækar tölur varðandi tapsyfirfærsluna. Það er ekki til sundurliðað frá árunum fyrir 1991. En það skiptir þó mestu máli í þessu andsvari að vekja athygli á því sem hv. þm. viðurkenndi í svari sínu við andsvarinu. Hann viðurkenndi að hann hafi reynt að nota frétt frá Þjóðhagsstofnun með þeim hætti að gera mikið úr launamun þeirra hæstu og lægstu hér á landi þegar það er kannski stærsta fréttin í þessu fréttabréfi að þessi launamunur hafi ekki breyst á milli áranna 1994 og 1995 á sama tíma og vitað er að sá launamunur sem þarna er notaður og þessi Gini-stuðull er notaður um, hann hefur verið að vaxa í flestum öðrum löndum í heiminum. Þegar hv. þm. var spurður að því hvort hann gæti nefnt eitt einasta land í heiminum þar sem launamunur væri minni en hér á landi þá gat hann það ekki. Hann er prófessor í hagfræði. Hvað segir þetta okkur? Það segir okkur að inngangsorð hv. þm. hljómuðu ekki þannig. Þau hljómuðu eins og þau væru spiluð á falska flautu. Því það er nefnilega þannig (Forseti hringir.) að sem betur fer búum við hér á landi við meiri jöfnuð í tekjum en víðast ef ekki alls staðar annars staðar.