Tryggingagjald

Fimmtudaginn 14. nóvember 1996, kl. 22:07:36 (1284)

1996-11-14 22:07:36# 121. lþ. 24.7 fundur 145. mál: #A tryggingagjald# (gjaldhlutfall) frv., StB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 24. fundur

[22:07]

Sturla Böðvarsson (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil bara ítreka það sem ég sagði áðan að ég hef ekkert á móti kerfisbreytingunni sem slíkri. Ég er sammála hv. þm. hvað það varðar. En ég vil ítreka að það verður að tryggja það, og það þarf hv. efh.- og viðskn. að skoða, með hvaða hætti er hægt að koma til móts við þessar greinar þannig að þetta virki ekki sem sérstök aðgerð til íþyngingar.