Endurskoðun laga um Lánasjóð ísl. námsmanna

Mánudaginn 18. nóvember 1996, kl. 15:06:55 (1311)

1996-11-18 15:06:55# 121. lþ. 26.1 fundur 90#B endurskoðun laga um Lánasjóð ísl. námsmanna# (óundirbúin fsp.), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur

[15:06]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Umræður urðu um þessi mál í Alþingi sl. þriðjudag, 12. nóvember, og þá gerði ég grein fyrir afstöðu minni í málinu. Hún hefur ekkert breyst frá því að ég fjallaði um það. Ég mun standa við það sem ég hef sagt að leggja málið fyrir Alþingi þegar nefnd sú hefur lokið störfum sem starfar á vegum stjórnarflokkanna.