Bryndís Hlöðversdóttir:
Herra forseti. Ég vildi gera athugasemd vegna orða hv. þm. Valgerðar Sverrisdóttur um að ráðherrar gætu svarað fyrirspurnum betur ef þeir vissu fyrir fram um hvað fyrirspurnirnar snerust. Þetta er rétt athugað hjá hv. þm. og ég get alveg tekið undir þessa athugasemd hennar að efni til, en ég vildi taka það fram sérstaklega að í því tilfelli sem er tilefni þessarar umræðu, Lánasjóður ísl. námsmanna, er um að ræða mál sem hæstv. ráðherra hefur beinlínis lýst því yfir að samkomulag liggi fyrir um á allra næstu dögum. Það er ekki spurt um stærra í þessu ákveðna tilviki heldur en það hvort samkomulag liggi fyrir og hæstv. ráðherra ákvað að svara því ekki. Mér finnst sú skýring sem hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir er væntanlega að leita að eða gerir kannski ráð fyrir að sé ástæðan fyrir því að svarið barst ekki eigi á engan hátt við í þessu tilviki. Og gagnrýni sú sem hér hefur komið fram gæti virkilega átt rétt á sér ef hæstv. ráðherra mundi bera því við að það lægju ekki fyrir svör við þeirri spurningu, en hann er búinn að lýsa því yfir trekk í trekk í fréttum að samkomulagið muni verða kynnt á allra næstu dögum og það er ekkert óeðlilegt við að um það sé spurt hér þar sem þetta er mál sem er í deiglunni, stórmál sem hefur dregist á langinn án nokkurra skýringa, án þess að þingið hafi fengið við því nokkur skýr svör af hverju nefndin sem um ræðir hafi ekki komið saman í marga mánuði.