Árni Steinar Jóhannsson:
Herra forseti. Ég fagna fram kominni tillögu og lýsi jafnframt yfir að ég er hissa á andstöðu hæstv. félmrh. Páls Péturssonar á tillögunni, því efnislega í ræðum virðist hann vera svo sammála. Það er hlutverk opinberra aðila að koma að launamálum einfaldlega vegna þess að við skynjum það öll og vitum þegar við erum að ræða um launamál, að við búum við algerlega forskrúfað kerfi sem þarf að taka upp algerlega frá grunni til að bæta kjörin. Það er ekki bara vinnutíminn. Það eru líka margir aðrir hlutir.
Ég held að allir sem koma að vinnumálum, ekki síst í þeim opinbera geira sem ég þekki, viti að yfirvinna, sem eingöngu er byggð á því að menn þurfi meiri laun, er eyðileggjandi fyrir starfsemi margra fyrirtækja og stofnana og algerlega óþolandi. Stefna á að því að taka yfirvinnutíma af fólki þannig að stjórnendur fyrirtækja geti nú, kannski í fyrsta sinn á Íslandi, beðið um yfirvinnu á eðlilegum nótum vegna þess að þörf er á henni. Þetta er mergurinn málsins.
En nefndin eða tillagan er svo góð vegna þess að Ísland er í algerri sérstöðu varðandi stöðu launamála. Það er varla hægt að bera Ísland saman við aðrar þjóðir vegna þess að á síðustu 12--15 árum bjuggum við við óðaverðbólgu sem kallaði á það að við unnum í svokölluðum pakkalausnum um margra ára skeið.
Ég hef verið opinber starfsmaður í 16 ár og nánast allan þennan tíma hef ég fengið launahækkanirnar mínar með afföllum sem voru bundnar í pakkalausnum. Það voru opinberir aðilar sem studdu pakkalausnir og pakkalausnir voru keyrðar áfram. Stundum fékk maður þá ánægju að vera að borga í vegakerfið, stundum í húsnæðiskerfið en stundum voru pakkalausnir sem voru skrifaðar til hagsbóta fyrir mig sjálfan. Það er mjög mikil ástæða til að skoða allar þessar pakkalausnir.
Ég nefni eina pakkalausn, sem var sett inn í kjarasamninga, og það er matur á vinnustöðum. Ætli matur á vinnustað reiknist ekki sem 10 þús. kr. fyrir manneskju sem hefur 60 þús. kr. á mánuði? Það eru miklir peningar í þessu samhengi.
En við erum að tala um fjölskyldustefnu í hinu orðinu. Hvernig stendur á því að við höfum pakkalausn upp á mat fyrir hina fullorðnu í hádeginu þegar næstum öll skólabörnin okkar hafa engan mat í hádeginu? Er þetta fjölskyldustefna og er þetta pakkalausn sem dugar? Það er þess vegna sem þarf að taka öll þessi mál frá grunni. Að margra mati eru inni í pípunum vegna pakkalausna ef til vill 20--30 þús. kr. Og eru það þá ekki peningarnir sem einmitt vantar til að dekka kostnað, vandræðakostnað, sem við erum að ræða næstum á hverjum degi varðandi vandræðagang í húsnæðiskerfi, afborgun námslána o.s.frv.?
Ég bind miklar vonir við þessa tillögu og ég skora á hæstv. félmrh., Pál Pétursson, að taka tillöguna til endurskoðunar og veita henni brautargengi. Einmitt með það að markmiði að fá út úr nefndinni þessa nauðsynlegu grunnvinnu sem kortleggur sviðið og líta á þetta út frá íslenskum aðstæðum. Ég árétta einu sinni enn: Íslenskt launakerfi er forskrúfað í pakkalausnafyrirkomulagi síðustu 15 ára og ofan af því verður að vinda. Það er hlutverk opinberra aðila að koma að því máli. Það eru allir hér, flutningsmenn og ábyggilega allir þingmenn sammála því að auðvitað eiga aðilar vinnumarkaðarins að leysa sín mál. Það er ekki málið. En menn verða að fá heildarsýn og það er hægt á þessum vettvangi. Þess vegna á að veita þessari tillögu brautargengi og ég legg höfuðáherslu á að í þessa vinnu verði farið.