Atvinnuleysistryggingar

Þriðjudaginn 19. nóvember 1996, kl. 14:28:22 (1378)

1996-11-19 14:28:22# 121. lþ. 27.7 fundur 171. mál: #A atvinnuleysistryggingar# (heildarlög) frv., ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur

[14:28]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Hæstv. forseti. Þessu er ég sammála. Ég tel að þessum ábendingum eigi að vísa í fjmrn. til hæstv. fjmrh. og annarra viðsemjenda launafólks hvort sem það er hjá Reykjavíkurborg þar sem bónus og viðbótarlaun eru núna mjög í tísku eða hjá Vinnuveitendasambandinu. En allir þessir aðilar virðast nú tala einum rómi, því miður.