Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég mun ekki lengja þessa umræðu en örstuttar athugasemdir. Fyrst um fimm ára tímabilið og fullyrðingu félmrh. um að þetta hafi verið tillaga frá Ögmundi Jónassyni og Hervari Gunnarssyni. Ekki þekki ég það en mér er hins vegar kunnugt um að þær hugmyndir sem þeir studdu eða komu með voru háðar því að sátt yrði um frv. um atvinnuleysistryggingar í heild og um þær aðgerðir sem frv. ber með sér. Þetta tjáði Hervar Gunnarsson mér sérstaklega þegar ég ræddi við hann í morgun. Mér finnst það óviðkunnanlegt varðandi tillögur af þessu tagi þegar hlaupið er undir pilsfald annarra. Hins vegar vaknar með mér nokkur bjartsýni út af orðum ráðherrans vegna þess að ég tel að með þessari yfirlýsingu hljóti að vera auðsótt mál að fella fimm ára tímabilið út ef tillagan á upphaf sitt hjá stjórnarandstöðunni.
Það kom fram að torveldara yrði að misnota þetta kerfi og það væri nokkuð um svarta vinnu og að fólk væri á atvinnuleysisbótum með tekjur sem ekki koma fram. Það er alveg ljóst að við munum standa að því að skoða hvað þarf til svo ekki sé verið að misnota kerfið. Sú gagnrýni sem við höfum haft uppi á Alþingi er ekki í þá veru að við viljum vera með kerfi sem er misnotað. Það á við um þetta kerfi, það á við um öll félagsleg kerfi þó manni sé ljóst að oft er hægt að misnota góð kerfi en það má aldrei eyðileggja þau af ótta við misnotkunina.
Það er auðvitað verið að spara. Að minnsta kosti 15 millj. sparast á næsta ári og sjóðurinn er í ár, ef ég man rétt, 2,8 milljarðar en ekki 4 milljarðar.
Virðulegi forseti. Ég ætla líka að hafa uppi þau orð við ráðherrann að margar konur í dag hafa ekki efni á því sem kynsystur þeirra áttu kost á á sínum tíma, nefnilega að vera heima hjá börnunum. Það þarf í flestum tilfellum núna tvo til að framfleyta fjölskyldu. (Forseti hringir.) Og í lokin, 16 ára unglingar í Evrópu vinna ekki. Þar eru aðrar hefðir, annars konar þjóðfélag. Hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson sagði að mjög fáir ungir væru á bótum. (Forseti hringir.) Ég treysti því að samstaða verði um að fella það ákvæði út í nefndinni og félmrh. styðji það.