Árni Steinar Jóhannsson:
Herra forseti. Ég get í sjálfu sér tekið undir margt af því sem lagt er til varðandi hjálp við fólk sem er í atvinnuleit og styrkingu á margan hátt í frv. sem nú er til umfjöllunar um vinnumarkaðsaðgerðir. Það eru ákvæði þar inni sem eru mjög til bóta. En ég geri alvarlegar athugasemdir í grundvallaratriðum við uppsetningu á vinnumiðlunum. Ég hélt satt að segja að við værum komin á árið 1996, á tölvuöld. Það er alveg eins og miðstýringarpúkinn svífi yfir vötnunum í einu og öllu sem við erum að gera. Vinnumiðlun ríkisins er að mínu mati algjör tímaskekkja. Ég get sæst á að til séu vinnumiðlanir sem séu svæðisbundnar eða héraðsbundnar eða eitthvað í þeim dúr en ég fullyrði að það er enginn vandi að stunda vinnumiðlun í þessu landi án þess að setja upp nýja ríkisstofnun með nýrri stjórn. Stjórnkerfið verður að hugsa alltaf og ávallt um valddreifingu þegar það er að fjalla um ný lög og nýjar aðgerðir. Stjórnkerfið á ekki að setja sig í þá stöðu að vera verkstjóri í einu og öllu. Stjórnkerfið á að verkstýra.
Ég held, þegar maður fer yfir mál, ekki bara þetta mál, að þessi miðstýringarpúki sé bara ígildi víruss inni á hinu háa Alþingi. Það er eins og menn sjáist ekki fyrir. Ég fer fram á að þessi þáttur laganna um vinnumiðlun verði endurskoðaður með þetta að meginmarkmiði. Öll námskeið sem verið er að senda menn á til að bæta stýringu, hvort sem það er á sveitarstjórnarsviði eða ríkisrekstrarsviði, kenna mönnum að deila út völdum og framkalla það besta í hverjum og einum í staðinn fyrir að gera allt sjálfir. Kannski ættum við öll að haska okkur á námskeið um verkstjórn. Þetta kemur fram alls staðar þar.
Það er vont fyrir félmrn. og hæstv. félmrh. að vera ábyrgur fyrir allri vinnumiðlun. Hlutverk hæstv. félmrh. er að hafa yfirlit og nema hvað er að gerast í landinu á hinum ýmsu vinnumiðlunum og hafa yfirlit sem eins og ég sagði áðan ætti að vera ákaflega auðvelt mál á tölvuöld.
Að svo mæltu vona ég að menn í félmn. taki til alvarlegrar athugunar þennan þátt málsins. Frá mínum bæjardyrum séð er algjör nauðsyn að stokka þar gjörsamlega upp á nýtt.