1996-12-20 23:47:31# 121. lþ.#F 55.#2. fundur. Kosningar., til 23:48:08| L gert 2 16:57
[prenta uppsett í dálka] 55. fundur

Kosning aðalmanns í stað Baldvins Jónssonar hrl. í landskjörstjórn til fyrsta þings eftir næstu almennar alþingiskosningar, skv. 8. gr. laga nr. 80 16. október 1987, um kosningar til Alþingis.

Fram kom ein tilnefning og þar sem ekki voru fleiri tilnefndir en kjósa skyldi lýsti forseti yfir að kosin væri án atkvæðagreiðslu:

Aðalmaður:

Guðríður Þorsteinsdóttir skrifstofustjóri.

[23:47]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):


Þar sem varamaður í landskjörstjórn, Guðríður Þorsteinsdóttir, var kjörin aðalmaður lagði forseti til að á þessum fundi yrði kjörinn varamaður í hennar stað og óskaði eftir tilnefningu.

Fram kom ein tilnefning og þar sem ekki voru fleiri tilnefndir en kjósa skyldi lýsti forseti yfir að kosin væri án atkvæðagreiðslu:

Varamaður:

Lára V. Júlíusdóttir héraðsdómslögmaður.