Stefnumörkun í heilbrigðismálum

Mánudaginn 02. desember 1996, kl. 18:38:20 (1676)

1996-12-02 18:38:20# 121. lþ. 32.4 fundur 114. mál: #A stefnumörkun í heilbrigðismálum# þál., heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 32. fundur

[18:38]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og fram kom í fyrra svari mínu er nefnd í gangi sem er að skilgreina betur biðlista því að þeir eru margs konar og við getum ekki notað þá sem stjórntæki eins og við viljum geta gert. Þegar þessi nefnd hefur lokið störfum munum við taka ákvörðun um það hvernig við reynum að leysa það biðlistamál sem við viðurkennum svo sannarlega að er til staðar.