Lífeyrissjóður bænda

Miðvikudaginn 04. desember 1996, kl. 19:56:54 (1828)

1996-12-04 19:56:54# 121. lþ. 35.6 fundur 118. mál: #A Lífeyrissjóður bænda# (kostnaðarhlutdeild ríkissjóðs) frv., Frsm. VE
[prenta uppsett í dálka] 35. fundur

[19:56]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. um frv. til laga um breyting á lögum nr. 50/1984, um lífeyrissjóð bænda, með síðari breytingum. Þetta frv. er ekki mikið að vöxtum en nefndin hefur engu að síður fjallað um það og fengið á sinn fund aðila úr fjmrn. Þá fékk nefndin einnig sendar umsagnir um málið frá Bændasamtökunum og frá Landssambandi lífeyrissjóða.

Hæstv. forseti. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.