Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég vil einungis vekja athygli á því að þetta frv. var lagt fram á þinginu í fyrra og fékk þá allmikla umfjöllun í efh.- og viðskn. þannig að ekki er hægt að segja að menn hafi rasað um ráð fram í meðferð málsins. Það sem kemur fram hjá hv. þm. er að sjálfsögðu umhugsunarvert og var rætt í nefndinni í meðferð málsins. Eins og ég skil það frv. sem hér er á ferðinni gengur það fyrst og fremst út á að selja embættisbústaði á tiltölulega stórum stöðum þar sem eignarhald ríkisins á þessum bústöðum skapar oft ákveðna mismunun á milli þeirra starfsmanna sem í hlut eiga og er hvorki eðlileg né sjálfsögð.
Á hinn bóginn tek ég alveg fyllilega undir það með hv. þm. að á ákveðnum stöðum er nauðsynlegt að ríkið eigi embættisbústaði. Ég held að það sem muni ráða þessu fyrst og fremst þegar til lengri tíma er litið sé ekki lagatextinn sem slíkur hvernig sem hann er heldur sú framkvæmd sem verður í gildi. Ég treysti því að mönnum muni takast að feta þarna skynsamlega leið og geti náð fram ákveðnum sanngirnismálum um sölu á íbúðarhúsnæði og ákveðinni skynsemi í því hvenær ríkið eigi að eiga húsnæði og hvenær ekki því það er heldur ekki eðlilegt að einhvers konar sjálfsafgreiðslustefna sé í því eða það sé sjálfsagt mál á stöðum þar sem ekki þarf á því að halda að ríkið eigi íbúðarhúsnæði.