Tekjustofnar sveitarfélaga

Fimmtudaginn 05. desember 1996, kl. 12:50:10 (1870)

1996-12-05 12:50:10# 121. lþ. 36.9 fundur 173. mál: #A tekjustofnar sveitarfélaga# (sumarhús o.fl.) frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur

[12:50]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka fyrir góðar undirtektir við frv. Mér þykir rétt að það komi fram í þessari umræðu að annar fulltrúinn sem tilnefndur var í nefndina af Sambandi ísl. sveitarfélaga er fyrirsvarsmaður í dreifbýlissveitarfélagi þar sem eru margir sumarbústaðir og því kunnugur þeirri hlið málsins og hann heitir Loftur í Haukholtum.