Tekjuskattur og eignarskattur

Fimmtudaginn 05. desember 1996, kl. 14:05:49 (1889)

1996-12-05 14:05:49# 121. lþ. 36.1 fundur 146. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (rekstrartap, afskriftareglur, hlutabréf o.fl.) frv., KÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur

[14:05]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Með þessari brtt. er verið að koma til móts við þá gagnrýni sem kom fram við 1. umr. um þetta mál. Hér er nú verið að þrepa niður þann afslátt sem fólk fær vegna kaupa á hlutabréfum. Við í stjórnarandstöðunni erum ánægð með þetta og samþykkjum þessa grein.