Virðisaukaskattur

Fimmtudaginn 05. desember 1996, kl. 14:31:47 (1900)

1996-12-05 14:31:47# 121. lþ. 36.3 fundur 144. mál: #A virðisaukaskattur# (málsmeðferðarreglur o.fl.) frv., KÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur

[14:31]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Hér er á ferðinni ótrúlega óskynsamleg tillaga. Það er ljóst að hún mun hafa í för með sér aukna svarta atvinnustarfsemi og skattsvik og því greiðum við kvennalistakonur atkvæði gegn þessari tillögu.