Guðný Guðbjörnsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég sit í hv. allshn. þar sem þetta frv. um barnaklám hefur verið ítarlega rætt. Reynslan í þjóðfélaginu undanfarna daga sýnir að brýnt er að setja lög af þessu tagi og mjög mikilvægt er að afgreiða þau sem allra fyrst. Þó er ljóst að nú á sér stað í þjóðfélaginu mjög mikil umræða um klám á internetinu sem ekki er tekið beint á í þessu frv. eins og fram hefur komið hjá frsm.
Þetta var mikið rætt í allshn. en það þykir ljóst núna að erfitt er að taka á þessu máli. Minn skilningur er sá að fullur vilji sé fyrir því í nefndinni að endurskoða þetta frv. ef tæknin þróast þannig að það verði tæknilega mögulegt fljótlega. Ég stend því heils hugar að þessu nál. allshn. og styð að lögfesta bann við vörslu barnakláms nú þegar.
Reyndar er aðeins um það rætt að önnur lönd séu þegar að takast á við klám á internetinu en eftir þeim upplýsingum sem við höfðum fengið er það ekki mögulegt svo vel sé.
Um friðhelgi einkalífsins sem hv. frsm. kom inn á áðan vil ég minna á og fagna að þegar gerðar voru stjórnarskrárbreytingar fyrir ári eða svo, þá var sett undir þann leka að friðhelgi einkalífsins geti komið í veg fyrir að börn séu vernduð gegn kynferðislegri misnotkun, þ.e. tekið var sérstaklega á því við stjórnarskrárbreytingarnar. Það var mikil framsýni að mínu mati þannig að frv. af þessu tagi er því mögulegt hér þó að Svíar t.d. séu nú í þeirri aðstöðu að þeir geti ekki lögtekið frv. af þessu tagi fyrr en þeir eru búnir að breyta sinni stjórnarskrá.
Niðurstaðan í nefndinni um aldursmörkin varð sú að miða við sjálfræðisaldur, sem nú er 16 ár. Ef sjálfræðisaldur verður hækkaður eins og frv., sem ég og hv. 13. þm. Reykv. hafa lagt fram í þinginu, gerir ráð fyrir, kemur þetta ákvæði til sjálfstæðrar endurskoðunar eins og önnur lög þar sem miðað er við sjálfræðisaldur. Samkvæmt núgildandi lögum um vernd barna og ungmenna eru börn skilgreind sem menn yngri en 16 ára, þó að barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna geri ráð fyrir að börn séu yngri en 18 ára. Þetta frv. um barnaklám verður að miðast við íslensk lög og því er viðmiðið 16 ár það eina sem gengur núna.
Ég fagna því sérstaklega að samstaða náðist um að flýta gildistöku frv. til 1. janúar í stað þess að hafa hana 1. júlí, eins og upphaflega frv. gerði ráð fyrir. En ég verð að segja það, hæstv. forseti, að þegar þetta mál kom fyrst til umræðu fyrir ári eða svo í allshn. var mér ekki ljóst hversu brýnt þetta mál væri. Ég hélt að þetta væri eitthvað sem gerðist í útlöndum en ekki á Íslandi. En því miður hefur reynslan í okkar þjóðfélagi hina síðustu daga og missiri sýnt að mjög brýnt er að setja þessi lög og ég fagna því að það er að verða að veruleika með samstöðu allra þingflokka.