Breytingar á lögum um LÍN

Þriðjudaginn 10. desember 1996, kl. 13:38:02 (1946)

1996-12-10 13:38:02# 121. lþ. 38.91 fundur 136#B breytingar á lögum um LÍN# (aths. um störf þingsins), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 38. fundur

[13:38]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Auðvitað er mál þetta í höndum menntmrh. eðli málsins samkvæmt. En það er alveg rétt að ég hef látið þess getið að það er mitt mat að menn séu að ná saman um þetta. Það er verið að vinna núna að útfærslum á hugmyndum sem ræddar hafa verið á milli stjórnarflokkanna og ég sé ekki annað en að fullt samkomulag muni nást um þær. Hins vegar mun það samkomulag væntanlega ekki nást að færast út í frumvarpsform áður en við förum heim í jólahlé.