Fjáraukalög 1996

Þriðjudaginn 10. desember 1996, kl. 16:52:16 (1985)

1996-12-10 16:52:16# 121. lþ. 38.8 fundur 48. mál: #A fjáraukalög 1996# frv., ÁMM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 38. fundur

[16:52]

Árni M. Mathiesen (andsvar):

Herra forseti. Það er ekkert um það að ræða að hv. þm. séu að standa upp og setja: ,,Ekki ég.`` Þetta er einfaldlega það sem lagt var upp með í fjárlagafrv. strax í haust og liggur alveg ljóst fyrir. Ég get hins vegar ekki svarað hv. þm. um það hvar þessar 160 millj. kr. muni bera niður einfaldlega vegna þess að ég á ekki sæti í þeirri nefnd sem hefur verið að vinna þær tillögur og þær hafa ekki legið fyrir í hv. fjárlaganefnd enn sem komið er. En eins og hann nefndi sjálfur, mun þetta liggja fyrir á næstu dögum og óþarfi að deila um það þegar niðurstaðan liggur fyrir.