Umferðarlög

Þriðjudaginn 10. desember 1996, kl. 20:43:30 (1996)

1996-12-10 20:43:30# 121. lþ. 38.12 fundur 55. mál: #A umferðarlög# (EES-reglur, vegheiti o.fl.) frv., GGuðbj (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 38. fundur

[20:43]

Guðný Guðbjörnsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Hvort umferðin er á 90 eða 110 nú, skal ég ekki segja um. En mér finnst það ekki meðmæli með því að hækka hraðann upp í 110 ef umferðin er núna á 110, því að þá má alveg eins búast við að hún verði enn þá hærri ef mörkin verða hækkuð. Ég vildi auðvitað helst að fólk keyrði á þeim hraða sem leyfilegt er.