Umferðarlög

Miðvikudaginn 11. desember 1996, kl. 16:03:15 (2060)

1996-12-11 16:03:15# 121. lþ. 40.4 fundur 55. mál: #A umferðarlög# (EES-reglur, vegheiti o.fl.) frv., VE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 40. fundur

[16:03]

Vilhjálmur Egilsson:

Hæstv. forseti. Þessi tillaga er lögð fram í nafni hins þögla meiri hluta sem ekur eftir vegum landsins á meira en 90 km hraða að meðaltali. Ég geri mér grein fyrir því að hér í þessum þingsal er ég vinafár en á þjóðvegum landsins eru vinirnir þess fleiri. Ég geri mér líka grein fyrir því að hinn hægfara meiri hluti í þessum sal mun einhvern tíma þurfa að herða ferðina. Ég segi já.