Tekjustofnar sveitarfélaga

Miðvikudaginn 11. desember 1996, kl. 16:39:53 (2075)

1996-12-11 16:39:53# 121. lþ. 41.1 fundur 173. mál: #A tekjustofnar sveitarfélaga# (sumarhús o.fl.) frv., SJS
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur

[16:39]

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Mér finnst ekki óeðlilegt úr því að hér er viðhafður afbrigðilegur flýtir á afgreiðslu þessa máls og það tekið á dagskrá á nýjum fundi með afbrigðum eftir að hafinn er venjulegur þingflokksfundatími að okkur sé gefin skýring á því hvers vegna svona brýna nauðsyn beri til að afgreiða þetta með þessum hætti. Er gjalddagi á morgun eða hvað?