Rannveig Guðmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég þarf ekki að bæta mörgum orðum við þetta en að gefnu tilefni hlýt ég að koma hér upp og láta þess getið að fulltrúi Þroskahjálpar í undirbúningsnefnd að þessari frumvarpssmíð er núna varaformaður Alþfl. en var það ekki þegar þessi nefnd var skipuð. Þessi einstaklingur er mjög verðugur fulltrúi og ég var mjög ánægð með að hún ætti sæti í þessari nefnd. En ég tek undir að það er afar mikilvægt í þessum stóru málaflokkum, málaflokki fatlaðra og líka þar sem boðað er í frv., sem ég var að renna augum yfir, að breyta ætti lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, að fulltrúar þingflokkanna á Alþingi, stjórnar og stjórnarandstöðu, komi að því máli. Þetta er svo víðtækt í okkar velferðarmálum að ég hvet ráðherrann til þess þegar sú undirbúningsnefnd fer af stað að huga að því að fulltrúar komi héðan frá Alþingi alveg óháð því hvaða hagsmunasamtök koma. Það er mjög mikils virði fyrir Alþfl. að Ásta B. Þorsteinsdóttir átti sæti í þessari nefnd en það fullnægir að sjálfsögðu ekki stjórnarandstöðuflokkunum á Alþingi að öðru leyti.