Viðvera ráðherra og frumvarp um málefni fatlaðra

Fimmtudaginn 12. desember 1996, kl. 13:49:18 (2088)

1996-12-12 13:49:18# 121. lþ. 42.91 fundur 139#B viðvera ráðherra og frumvarp um málefni fatlaðra# (aths. um störf þingsins), ÁÞ
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur

[13:49]

Ásta B. Þorsteinsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég hafði ekki hugsað mér að taka til máls í þessari umræðu en ég get ekki orða bundist núna. Ég vil taka það fram og ég er alveg sannfærð um það að ég mæli fyrir munn þeirra samtaka sem ég var fulltrúi fyrir við endurskoðun þessara laga að þau tilheyra hvorki Alþfl. né jafnaðarmönnum. Ég vil að það komi skýrt fram. Ég var fulltrúi þeirra sem foreldri innan þeirra samtaka og pólitísk afskipti mín koma þar ekkert málinu við.