Fiskveiðar utan lögsögu Íslands

Föstudaginn 13. desember 1996, kl. 13:42:16 (2146)

1996-12-13 13:42:16# 121. lþ. 43.1 fundur 57. mál: #A fiskveiðar utan lögsögu Íslands# (heildarlög) frv., SJS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur

[13:42]

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Hér kemur til atkvæða 3. mgr. 5. gr. og það er vegna innihalds þessarar málsgreinar og sambærilegrar málsgreinar 6. gr. sem við þingmenn Alþb. og óháðra höfum fyrirvara á um afstöðu okkar til þessa frv. Við teljum að þau heimildarákvæði sem hér er um að ræða séu ekki nægjanlega vel skilgreind og ekki nægjanlega vel afmörkuð til þess að óyggjandi sé að verið sé að ganga rétt frá málinu. Við munum því ekki greiða þessum málsgreinum atkvæði okkar en styðja frv. að öðru leyti.