Svanfríður Jónasdóttir:
Herra forseti. Hér er sama atriði á ferðinni og í 3. mgr. 5. gr., þ.e. ráðherra mun skerða hjá úthafsútgerðunum um 7% af þeim heimildum sem þær ella fengju. Ég hef stutt veiðileyfagjald og geri enn sé það innheimt samkvæmt jafnræðisreglu og greitt þeim sem eru eigendur auðlindar. Ég get ekki stutt gjald sem er lagt sérstaklega á þá sem stunda erfiðustu veiðarnar og greitt hinum sem hafa heimildir innan lögsögu. Þess vegna hlýt ég að segja nei.