Fjárlög 1997

Laugardaginn 14. desember 1996, kl. 11:55:14 (2235)

1996-12-14 11:55:14# 121. lþ. 44.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1997# frv., GÁS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur

[11:55]

Guðmundur Árni Stefánsson:

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða tillögu um kaup á viðbótarhúsnæði fyrir heilsugæsluna í Hafnarfirði. Í fyrirliggjandi frv. til fjárlaga er heimildargrein þessa efnis, raunar einnig í gildandi fjárlögum. Sú heimild hefur ekki verið nýtt þrátt fyrir talsverðan eftirgang í þeim efnum. Því er brýn nauðsyn að hið háa Alþingi lýsi yfir skýlausum vilja sínu til þessarar framkvæmdar en láti ekki standa inni ónotaða heimild um langan tíma. Þess vegna vil ég eindregið fá svar við því, og horfi sérstaklega á hæstv. heilbrrh. í þeim efnum, hvort þessi heimild sé orðin tóm eða raunveruleiki sem fara á eftir. Ég segi já.