Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Um kl. fimm síðdegis fer fram utandagskrárumræða, það gæti orðið um 15 mín. yfir fimm. Málshefjandi er Hjörleifur Guttormsson og dómsmrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa, hálftíma umræða. Efni umræðunnar er Schengen-samstarfið.
Um fundarhaldið að öðru leyti vill forseti geta þess að þegar lokið er atkvæðagreiðslum um átta fyrstu dagskrármálin og 9. dagskrármálið er gert ráð fyrir að settur verði nýr fundur og fari þá fram frekari atkvæðagreiðslur.