Tryggingagjald

Þriðjudaginn 17. desember 1996, kl. 13:37:28 (2289)

1996-12-17 13:37:28# 121. lþ. 46.1 fundur 145. mál: #A tryggingagjald# (gjaldhlutfall) frv. 156/1996, ÁE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur

[13:37]

Ágúst Einarsson:

Herra forseti. Þessi tillaga fjallar um að samræma tryggingagjald milli atvinnuvega. Tillaga fjallar um grundvallaratriði. Þeir sem vilja áframhaldandi mismunun milli atvinnugreina styðja ekki þessa tillögu. Þingflokkur jafnaðarmanna telur að ívilnanir og mismunun gagnvart einstökum atvinnugreinum eigi ekki að vera í skattalögum. Með næstu tillögu er þessari samræmingu dreift á fjögur ár sem er að okkar mati viðunandi útfærsla. Við styðjum þessa tillögu og ég segi já.