Vörugjald

Þriðjudaginn 17. desember 1996, kl. 13:45:58 (2292)

1996-12-17 13:45:58# 121. lþ. 46.2 fundur 142. mál: #A vörugjald# (gjaldflokkar, lækkun gjalda) frv. 148/1996, ÁE (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur

[13:45]

Ágúst Einarsson:

Herra forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um breytingar á vörugjaldi. Það hangir að nokkru leyti saman við frv. um tryggingagjald sem hér var verið að afgreiða og við studdum meginþætti þess frv. Þetta frv. gengur út á lækkun vörugjalds og þar með lækkun á útgjöldum einstaklinga. Við styðjum þá aðferðafræði sem þar er lagt upp með og gerum ekki athugasemdir við þá vöruflokka sem lækkuð eru gjöld á. Við teljum vera samræmi í þessu í ljósi breytinga sem gerast á alþjóðlegum vettvangi, þ.e. að lækka vörugjöld. Fjármögnun þessa liðar er einnig tryggð með afgreiðslu fyrra frv. sem hér var til afgreiðslu. Við styðjum því þetta frv. eins og það kemur frá meiri hluta efh.- og viðskn.