Afbrigði

Þriðjudaginn 17. desember 1996, kl. 14:09:09 (2295)

1996-12-17 14:09:09# 121. lþ. 47.92 fundur 144#B afbrigði# (afbrigði við dagskrá), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur

[14:09]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Það hagar svo til um 1.--7. dagskrármál að of skammt er liðið frá 2. umr. og þarf að leita afbrigða til þess að dagskrármálin megi koma fyrir. Í öðru lagi er of skammt liðið frá útbýtingu nál. í 11. dagskrármáli, Öryggi raforkuvirkja. Og í þriðja lagi er of skammt liðið frá útbýtingu brtt. á þskj. 391. Forseti hyggst nú leita afbrigða fyrir öllum þessum málum í einu.