Vörugjald

Þriðjudaginn 17. desember 1996, kl. 14:23:28 (2302)

1996-12-17 14:23:28# 121. lþ. 47.6 fundur 142. mál: #A vörugjald# (gjaldflokkar, lækkun gjalda) frv. 148/1996, Frsm. meiri hluta EOK
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur

[14:23]

Einar Oddur Kristjánsson:

Herra forseti. Brtt. á þskj. 391 er flutt vegna mistaka sem urðu hér í gær. Hún er svohljóðandi, með leyfi forseta:

,,Við 4. gr. Á eftir b-lið komi nýr stafliður er orðist svo: Eftirgreind tollskrárnúmer falla brott úr A-lið viðaukans: 1806.9027 og 3302.1029.``

Þetta þótti rétt til þess að ekki færi milli mála að þetta væri A-liður viðaukans. Það sem um er að ræða hér er morgunkorn með súkkulaði.