Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Ágúst Einarsson) (andsvar):
Herra forseti. Alltaf batnar röksemdafærslan hjá hæstv. ríkisstjórn. Nú var fallskatturinn orðinn sanngjarn, þetta er orðið sanngjarnt sem hér var verið að leggja til. Ég veit ekki hvert við erum komin varðandi þennan þátt. Á það er bent mjög skýrt bæði í umræðu, eins og ég hef haldið fram, og í áliti minni hluta menntmn. að sé skipulagsvandi í einstökum skólum, þá er miklu fremur að leita ráða, auka ráðgjöf og eftirlit sem er mun virkari leið til skilvirkara skólastarfs. Þetta er skýrt tekið fram. Við teljum rangt að á sama tíma og það er niðurskurður til þessa mikilvæga málaflokks, þá séu skilaboðin til nemenda í framhaldsskólum frá ríkisstjórninni ekki einungis um að skerða framlög til þessa málaflokks almennt heldur eru nemendurnir sérstaklega skattlagðir varðandi sitt nám. Það er ekki sanngirni í þessu. Þetta er ósanngjarnt og það sem meira er, þetta er vond menntastefna að mati okkar í minni hlutanum. Efnisbreytingin kostar um 500 kr. á einingu þannig að þriggja eininga áfangi gerir þá 1.500 kr. Þetta er bitamunur en ekki fjár. Það eru nokkrir þættir í þessari brtt. sem skýra málið en það er jafnvont fyrir því. En það að kalla þessa útfærslu sanngjarna finnst mér e.t.v. lýsa betur en margt annað raunverulegum viðhorfum hæstv. menntmrh. til þessa málaflokks.