Lúðvík Bergvinsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Í fyrsta lagi eru þessi lög ekki sambærileg því það er kveðið á um miklu ríkari heimildir í þessu frv. sem nú er til umræðu en í lögum um Samkeppnisstofnun. Og lög um Samkeppnisstofnun eru ekkert hér til umræðu. Við erum að ræða allt annað frv. Ég get upplýst það hér að ég hef kannað það hjá Samkeppnisstofnun hvernig þeir nýta sér þessa heimild og þar hefur mér verið tjáð að þeir muni aldrei nýta þessa heimild nema að undangengnum dómsúrskurði. Ég get upplýst um það hér. Þannig að hvert einasta orð stendur, hvert eitt og einasta orð og ég hvet form. samgn. enn og aftur, sennilega í þriðja eða fjórða sinn, að boða nú til fundar á milli 2. og 3. umr. og kippa þessu í liðinn vegna þess að að mörgu leyti eru þetta ágæt frumvörp sem hér eru á ferðinni. En þessar ambögur þarf einfaldlega að sníða af og ég treysti jafnvönduðum þingmanni og 1. þm. Vestf. er, til að sjá til þess að þessir annmarkar sem þó eru ekki litlir verði nú sniðnir af fyrir 3. umr.