Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1997

Fimmtudaginn 19. desember 1996, kl. 12:37:25 (2449)

1996-12-19 12:37:25# 121. lþ. 50.7 fundur 119. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum 1997# (breyting ýmissa laga) frv. 140/1996, Frsm. meiri hluta VE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur

[12:37]

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég átti nú ekki von á því að fulltrúi stjórnarandstöðunnar teldi að þessar breytingartillögur væru neinn sérstakur gleðiboðskapur. Þó er ég viss um það að hann hafi aðeins mýkst í málinu í kjölfar mikilla umræðna í efh.- og viðskn. um refaveiðarnar og geti verið sammála því að málið er komið í betra horf.