Lánsfjárlög 1997

Fimmtudaginn 19. desember 1996, kl. 21:41:30 (2513)

1996-12-19 21:41:30# 121. lþ. 51.6 fundur 24. mál: #A lánsfjárlög 1997# frv. 160/1996, SvG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur

[21:41]

Svavar Gestsson:

Virðulegi forseti. Með þessari tillögu er meiri hlutinn að leggja til skerðingu á fjármunum Lánasjóðs ísl. námsmanna þrátt fyrir fögur fyrirheit um að bæta þjónustu lánasjóðsins fyrir námsmenn í landinu. Ég tel algerlega óeðlilegt að lækka þessa tölu eins og hér er gert ráð fyrir og greiði því atkvæði gegn tillögunni.