Svavar Gestsson:
Virðulegi forseti. Ég kveð mér hér hljóðs í atkvæðaskýringu út af þessari ótrúlegu grein um sameiningu sjúkrahúsanna. Ég held satt að segja að það sé óhjákvæmilegt að vekja sérstaka athygli á þessari grein og fara fram á að hlutaðeigandi aðilar, og þar á meðal hæstv. heilbrrh., kanni hvort þetta stenst í raun og veru. Það hafa gengið fjölmargir dómar í Hæstarétti um valdaframsal sem aðallega hafa snert skattlagningarvald. Hér er gengið miklu lengra en nokkur dæmi eru um, fullyrði ég. Ég hvet til þess að hæstv. heilbrrh. og hæstv. forsrh., sem forráðamaður ríkisstjórnarinnar kanni mjög vandlega hvort það stenst að setja í lög ákvæði um reglugerðarsetningu sem afnemur fjöldann allan af lagaákvæðum eins og þau eru nú skráð í lagasafninu.