Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frhnál. frá meiri hluta efh.- og viðskn. um frv. til lánsfjárlaga.
Brtt. frá meiri hlutanum er í tveimur liðum. Í fyrsta lagi er brtt. við 1. gr. þar sem verið er að stilla af lántökuheimild í takt við niðurstöðutölu fjárlaga. Í öðru lagi er tillaga um nýja grein sem er samhljóða grein í lánsfjárlögum fyrir árið 1996 og miðar að því að ríkissjóður geti starfað eðlilega á fjármagnsmarkaði.