Fjárlög 1997

Föstudaginn 20. desember 1996, kl. 17:51:01 (2658)

1996-12-20 17:51:01# 121. lþ. 53.11 fundur 1. mál: #A fjárlög 1997# frv., Frsm. meiri hluta JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 53. fundur

[17:51]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég hef í rauninni gert grein fyrir þessu máli en vildi bæta því einu við að ég tel það auðvitað leiða af eðli máls í framvindu þessara mála að umhvrn. og landbrn. komi að því og ég þykist vita að umhvrn. og umhvn. Alþingis eftir atvikum fylgist með framvindu þessa máls í þá veru sem línur eru lagðar um í þessari beiðni.