Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Það má vel vera að hv. þm., Jón Kristjánsson, hafi að einhverju leyti misskilið svar mitt. Ég er í hópi þeirra sem hafa gert góðan róm að máli þeirra hv. nefndarmanna sem hafa rætt þetta. Ég hef sagt að þeir hafa sýnt í verki að það var rétt sem við vorum að segja. Það var ekki hægt að ná 160 millj. kr. sparnaði. Þessir ágætu menn skildu þetta og fóru í það verk að draga úr þessum sparnaði. Þeir telja að hægt sé að ná 60 millj. kr. sparnaði á árinu. Hvernig á að gera það? Hv. þm. Jón Kristjánsson segir að það eigi að gera það með því að ræða við stjórnir sjúkrahúsanna. Ja, guð láti gott á vita. Hvers vegna á að fara í það núna frá þessum tímapunkti og fram í mars eins og liggur fyrir? Hvers vegna var það ekki búið? Hvers vegna gerðu menn það ekki löngu áður en þeir réðust í að leggja fram þessar tillögur sem hv. fjárln. hefur með verkum sínum staðfest að studdist ekki við veruleikann og voru óraunhæfar? Ég ítreka það, herra forseti, sem ég sagði í dag að fjárln. hefur staðið mjög vel að þessu verki. Hún hefur staðfest að vinnubrögð heilbrrn. í þessu máli voru mjög slæm. Hún hefur tekið völdin af heilbrrn. og sett fram sínar eigin tillögur og leiðir til sparnaðar. Ég óska þess að þær nái fram að ganga. En ég vil ítreka hina spurningu mína til hv. formanns fjárln.: Hefði hann ekki talið eðlilegt að minni hluti fjárln. hefði líka fengið umræðu um þetta og þetta hefði verið lagt fram á minnisblaði en ekki bara munnlega eins og kom fram hjá varaformanni nefndarinnar í dag? Finnst honum kannski ekki að það hefði verið í lagi að ef til vill hefði verið haft samráð við heilbr.- og trn. bara til að rifja það upp að hún er fagnefndin og á lögum samkvæmt að fjalla um mál af þessu tagi líka?