1996-12-21 00:32:08# 121. lþ. 55.8 fundur 1. mál: #A fjárlög 1997# frv., samgrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 55. fundur

[24:32]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Eins og þingheimi er kunnugt hefur verið ráðist í þennan niðurskurð á framkvæmdum vegna þeirrar þenslu sem fyrirsjáanleg er í framkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Ég hef tekið eftir því að hv. þm. hafa áhyggjur af því að verið sé að fresta framkvæmdum sem hæpið sé að gera og mér finnst það sjálfsagt að taka það upp við borgarstjórn Reykjavíkur hvort hægt sé að hafa annan hátt á og ná samkomulagi við hana um að fresta öðrum framkvæmdum í staðinn.