Guðmundur Árni Stefánsson:
Herra forseti. Ég lýsi yfir fullri ábyrgð á hendur núv. ríkisstjórn og stjórnarþingmönnum og þá einkanlega þingmönnum Reykn. og Reykv. vegna þessarar tillögu. Og ég er viss um að kjósendur þessara þingmanna munu muna þessa atkvæðagreiðslu og fylgjast mjög grannt með henni. Ég segi vitaskuld nei.