Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Hér er reyndar verið að hækka fé til framkvæmda á flugvöllum enda hefur komið í ljós að tekjur til þeirra eru meiri en gert var ráð fyrir. Engu að síður á nú að skera niður fjárveitingar til Reykjavíkurflugvallar um 90 millj. kr. miðað við flugáætlun og þá flugáætlun sem Alþingi hefur samþykkt. Flugvöllurinn er í alvarlegri niðurníðslu og við vissar aðstæður á hættumörkum. Flugráð hefur ályktað um að ekki sé óhætt að fresta framkvæmdum og bendir á að grípa þurfi til takmarkana á umferð um völlinn verði ekki hafist handa við uppbyggingu. Ég mótmæli því að Reykjavíkurflugvöllur, einn flugvalla, búi við niðurskurð og það 90 millj. og ég vara við afleiðingunum. Ég segi nei.