1996-12-21 00:46:14# 121. lþ. 55.8 fundur 1. mál: #A fjárlög 1997# frv., JónK (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 55. fundur

[24:46]

Jón Kristjánsson:

Herra forseti. Sú tillaga sem hér um ræðir er um kostnaðarhlutdeild ríkissjóðs við eyðingu refa. Það skal tekið fram og það hefur komið fram í vinnu fjárln. að umhvrh. mun gangast fyrir viðræðum við Samtök sveitarfélaga um málið. Liðurinn hefur verið hækkaður um 7 millj. (Gripið fram í: Úr engu.) og fjárveitinguna þarf að endurmeta þegar niðurstaða þeirra viðræðna liggur fyrir. Ég tel að þetta mál sé í viðunandi farvegi og segi því nei við þessari tillögu.