Kristinn H. Gunnarsson:
Herra forseti. Nú er komið að því að greiða atkvæði um þennan mikla bálk í einu lagi eins og hann lítur út. Fjárlög verðum við að hafa og ekki þýðir því að greiða atkvæði gegn þessum lagabálki. Á hinn bóginn kemur heldur ekki til álita að mínu viti að greiða atkvæði með þessu frv. eins og það lítur út og fyrir því eru allnokkrar ástæður. Í fyrsta lagi vil ég nefna að skattbyrðin er þyngd í þessu frv. og þá einkum á lágar tekjur. Tekjuskipting og dreifing er óásættanleg í frv. miðað við það sem ég vil sjá af hálfu ríkisvaldsins.
Þá erum við stjórnarandstæðingar verulega ósáttir við fjárveitingar til sjúkrahúsa og heilbrigðismála almennt, til framhaldsskóla og til samgöngumála. Af öllum þessum ástæðum samanlögðum og mörgum öðrum fleirum sem ég hef ekki nefnt í þessari skýringu kemur ekki til álita, eins og ég gat um áður, að greiða atkvæði með frv. Við munum því sitja hjá.