126. FUNDUR
miðvikudaginn 14. maí,
kl. 9 síðdegis.
Almennar stjórnmálaumræður (útvarpsumræður).
Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og hafði hver þingflokkur til umráða 20 mínútur sem skiptust þannig að í fyrstu umferð hafði hver þingflokkur 8 mínútur til umráða og sex mínútur í tveimur síðari umferðunum. Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Þingfl. jafnaðarmanna, Sjálfstfl., Alþb. og óháðir, Framsfl. og Samtök um kvennalista.
Ræðumenn þingflokks jafnaðarmanna voru Sighvatur Björgvinsson, 4. þm. Vestf., í fyrstu umferð, Ásta R. Jóhannesdóttir, 18. þm. Reykv., í annarri umferð, og Jón Baldvin Hannibalsson, 9. þm. Reykv., í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Sjálfstfl. voru Halldór Blöndal samgrh., í fyrstu umferð, Arnbjörg Sveinsdóttir, 5. þm. Austurl., í annarri umferð, og Einar Oddur Kristjánsson, 3. þm. Vestf., í þriðju umferð.
Ræðumenn Alþb. og óháðra voru Margrét Frímannsdóttir, 5. þm. Suðurl., í fyrstu umferð, Sigríður Jóhannesdóttir, 8. þm. Reykn., í annarri umferð, og Svavar Gestsson, 8. þm. Reykv., í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Framsfl. voru Halldór Ásgrímsson utanrrh., í fyrstu umferð, Ísólfur Gylfi Pálmason, 4. þm. Suðurl., í annarri umferð, og Jón Kristjánsson, 2. þm. Austurl., í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Samtök um kvennalista voru Guðný Guðbjörnsdóttir, 19. þm. Reykv., í fyrstu umferð, Kristín Halldórsdóttir, 12. þm. Reykn., í annarri umferð, og Kristín Ástgeirsdóttir, 14. þm. Reykv., í þriðju umferð.
[22:51]
Fundi slitið kl. 22:53.
---------------